Margmenni á Notalegri sögustund

Halla Karen las söguna um Rauðhettu í Notalegri sögustund laugardaginn 30. janúar. Margir komu og hlýddu á söguna, skoðuðu  bækur og kíktu við á Ráðhúskaffi. Halla Karen les sögur síðasta laugardag hvers mánaðar, undir yfirskriftinni Notaleg sögustund.  Munið að skrá ykkur á póstlistann okkar og fáið allar nýju fréttirnar, viðburðadagatalið okkar er að fyllast!

Við erum einnig á facebook, Instagram og Pinterest.