Lokað á tölvupóstsendingar

Það er vandlifað í net- og tölvuheimum þessa dagana. Tölvupóstsárásir hafa færst mjög í vöxt og nú er svo komið að framleiðandi kerfisins sem leitir.is byggir á, hefur af öryggisástæðum farið þess þess á leit að tímabundið verði lokað á allar tölvupóstsendingar úr leitir.is. Þetta hefur þegar verið gert. 

Þetta gildir um allar tölvupóstssendingar úr leitir.is, af ‚Mínar síður‘, úr fullri færslu og úr „Hafðu samband“ forminu. 

Framleiðandinn vinnur að því að finna varanlega lausn til að fyrirbyggja spampóstsendingar en þangað til lausn finnst verða tölvupóstssendingar úr leitir.is óvirkar líkt og áður sagði. Nánari upplýsingar koma síðar.

Beðist er velvirðingar á óþægindunum sem þetta hefur í för með sér.