Leshringur hittist í Bókasafni Reykjanesbæjar

Þessi glæsilegi hópur kom til okkar í safnið síðastliðna viku.

Þessar konur eru í leshring á höfuðborgarsvæðinu og eru að lesa bókina Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman.

Þær ákváðu að hittast í Bókasafni Reykjanesbæjar og spjalla um söguna sem gerist að stórum hluta í Keflavík.