Leshringur hittist

LeshringurNokkrir meðlimir leshrings Bókasafns Reykjanesbæjar komu saman í gær, 21. janúar. Rætt var um jólabækurnar, m.a. um bók Jóns Kalman, Eitthvað á stærð við alheiminn. Margar könnuðust við Jón Kalman frá því hann bjó í Keflavík og þótti gaman að tengja saman eigin minningar við texta bókarinnar.