Krakkar leita að köttum í gamla bænum og mæta í bíó!

Í byrjun afmælisviku var myndin Didda og dauði kötturinn sýnd í bíósal Duus. Myndin fjallar um hina níu ára Diddu sem býr í gamla bænum í Keflavík. Didda elskar að fylgjast með nágrönnum sínum og velta fyrir sér hvað þeir eru að brasa. Einn daginn leiða njósnirnar hana fram af skúrþaki þannig að hún dettur ofan í lýsistunnu...

Sama dag hófst skemmtilegur ratleikur um gamla bæinn þar sem fjörugum krökkum var boðið upp á ískalt og frískandi límonaði. Óhætt er að segja að viðburðurinn sló í gegn og fjöldi krakka fengu sér límonaði og mættu svo í bíó og fengu popp og djús.

Ekki örvænta! Hægt er að spila ratleikinn í gegnum snjalltæki (ratleikjaapp) eða á pappír sem sækja má í Bókasafni Reykjanesbæjar – í allt sumar.

Í leiknum er farið á milli stöðva í gamla bænum í Keflavík – á slóðir Diddu og dauða kattarins. Á hverjum stað er spurt út í söguna, leystar skemmtilegar þrautir og stigum safnað um leið. Leikurinn byrjar við Norðfjörðsgötu 1 þar sem Didda bjó. Á leiðinni er hægt að telja ketti sem finna má á fjölda staura í hverfinu. Við hvetjum flesta til þess að ganga, skokka eða hjóla.

Aðferðin er einföld. Það þarf aðeins að vera með snjallsíma eða spjaldtölvu til þess að taka þátt ásamt því að sækja snjallforritið hér eða fá ratleikinn á pappírsformi í Bókasafni Reykjanesbæjar. Til þess að vinna stig þarf að svar laufléttum spurningum úr sögunni. Skila má úrlausnum í kassa í Bókasafni Reykjanesbæjar.