Græn fræðsla og sjálfbærni fyrir íbúa Reykjanesbæjar

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðumað…
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar og fulltrúi verkefnins og Margrét Sverrisdóttir, verkefnisstjóri fullorðinsfræðsluhluta Erasmus+

Bókasafn Reykjanesbæjar hefur hlotið 60 þúsund evru styrk úr Erasmus+ styrkjaáætlun ESB fyrir
mennta-, æskulýðs- og íþróttamál á sviði fullorðinsfræðslu. Bókasafnið sótti um styrkinn ásamt samstarfsaðilum frá Noregi og Slóvakíu. Verkefnið hófst á haustdögum 2022 með heimsókn til borgarinnar Bratislava.

Stefanía Gunnarsdóttir tók við styrknum fyrir hönd verkefnisins og sagði við tækifærið „stefnt er á að nærsamfélagið í Reykjanebæ þekki betur hugtakið sjálfbærni, læri nýja hluti og aðferðir í grænum lífsstíl og minnka vistspor okkar í leiðinni. Hugmyndafræði verkefnisins er ný útfærsla á deilihagkerfinu eins og við þekkjum það, þar sem horft er til samnýtingar með það að markmiði að auka umhverfisvernd.“

Markmið verkefnisins er að auka þátttöku íbúa, efla fræðslu til þeirra og um leið bæta umhverfið. Í því felst gerð kennsluefnis til nota í fullorðinsfræðslu í öllum þremur löndum þátttökuaðila. Gert er ráð fyrir því að í verkefninu verði til þekking og efni sem hægt er að deila milli landa þar sem allir leggja sitt af mörkum. Fræðsluáætluninni verður dreift víða og mun m.a. nýtast öllum fræðsluaðilum, samtökum og þeim sem hafa áhuga á grænum verkefnum með sjálfbærni að leiðarljósi. Bókasafnið mun hafa umsjón með kennsluhluta verkefnisins. Það ber einnig ábyrgð á verkefninu og fer með stjórnun fjármála, skýrslugerð og eftirlit.

Að sögn Stefaníu er slíkt samstarfsverkefni mikilvægt því það veiti stofnunum og samtökum tækifæri til að skiptast á reynslu og kynnast nýjum aðferðum. „Með þessu verkefni erum við að skapa saman samfélag til þess að læra hvert af öðru, taka þátt og deila þekkingu og hugmyndum um sjálfbærni. Markhópurinn er fullorðnir en í raun geta allir hópar á öllum aldri tekið þátt í verkefninu.“

Bókasafnið hefur margra ára reynslu af viðburðum og fræðslu fyrir fullorðna. Þar er boðið upp á þjónustu fyrir alla og á síðustu árum hefur orðið aukning í formlegum og óformlegum námskeiðum. Lögð hefur verið sérstök áhersla á þátttöku sem flestra, þeirra sem hafa færri tækifæri vegna atvinnuleysi, veikinda, eru nýir í samfélaginu eða standa þar höllum fæti.

Stefanía segir allt samfélagið geti hagnast af verkefninu. „Það er unnið með nærsamfélaginu þar sem ný þekking og reynsla verður til sem hvetur til nýsköpunar. Löndin þrjú sem taka þátt skipuleggja sinn hluta með vinnustofum og vettvangsheimsóknum og koma með þekkingu og hugmyndir sem nýtast samfélaginu líkt og gróðursetningu á matjurtum, umhirðu og uppskeru. “

Aðspurð um væntingar hópsins að verkefninu loknu segir Stefanía að auk þess að minnka kolefnisspor verði til ný þekking og nýjar aðferðir í nærsamfélaginu þar sem allir geta lagt sitt af mörkum.

Allt efni frá heimsóknum, kynningum og vinnustofum verður sett inn á upplýsingavef verkefnisins svo það sé aðgengilegt sem flestum. Þannig er alltaf hægt að rifja upp aðferðir og vinnulag og jafnvel þróa verkefnið áfram. Gert er ráð fyrir að verkefnislok verði árið 2024.