Glæpavettvangur í bókasafninu

Aðkoman í Bókasafn Reykjanesbæjar gerði mörgum hverft við í morgun.

 

Lögregluborðar, blóðslettur, hnífar, byssur og skotför voru á víð og dreif um safnið.

 

Við betri eftirgrennslan mátti þó sjá að vopnin og blóðið voru búin til úr plasti. En hvers vegna?

Glæpasagnavika stendur nú yfir í bókasafninu og þeim bókaflokki er gert sérlega hátt undir höfði. Hægt er að spreyta sig á glæpasagnagetraun og athuga hvernig kunnáttan er. Spurningarnar eru gerðar úr ýmsum nýlegum glæpasögum. Spurningarnar er hægt að nálgast í afgreiðslu safnsins eða hér á heimasíðu safnsins: http://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn/thjonusta/fullordnir/glaepasagnagetraun

Glæpakóngurinn eða glæpadrottningin verða valin í byrjun næstu viku og fá glæpasögu að gjöf.

 

Hápunktur glæpasagnavikunnar verður fimmtudagskvöldið 27. október þegar glæpasagnahöfundarnir Lilja og Yrsa Sigurðardætur mæta á svæðið með glænýjar glæpasögur. Þær lesa úr sögum sínum og segja aðeins frá sínum glæpasagnaáhuga og hvernig þeirra sögur verða til.

Allir gestir glæpsamlega velkomnir!