Fólk sólgið í Bókakonfektið - vel heppnað upplestrarkvöld

Hið árlega Bókakonfekt Bókasafns Reykjanesbæjar var haldið síðastliðinn fimmtudag  og var það virkilega vel sótt eins og oft áður.

Þær Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Dagný Maggýjar lásu vel valda kafla úr nýútkomnum bókum sínum; Hið heilaga orð, Hasim og Á heimsenda. 

Rafmagnsgítarleikarar frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hófu kvöldið með samspili en það voru þeir Sigurður Baldvin Ólafsson, Arnar Geir Halldórsson og Aron Örn Óskarsson sem spiluðu nokkur lög.

bókakonfekt 2018

bókakonfekt 2018

bókakonfekt 2018

bókakonfekt 2018