Ebba Guðný á Foreldramorgni

Fjöldi foreldra og barna komu í Bókasafnið í dag og hlýddu á Ebbu Guðnýju halda áhugavert erindi um leiðir til að útbúa hollan og góðan ungbarnamat á Foreldramorgni Bókasafns Reykjanesbæjar.

Ebba Guðný benti á aðferðir sem hægt er að tileinka sér í átt til betri heilsu með fjölbreyttu mataræði fyrir alla fjölskylduna. Þá er mikilvægt að byrja snemma á að venja ungviðið við því að borða hollan og góðan mat.