Dregið út í sumarlestri á hverjum föstudegi í allt sumar!

Galdraívaf í sumarlestri í allt sumar!

Í Bókasafni Reykjanesbæjar er sumarlesturinn í fullum gangi. Allir geta verið með og sótt sér lestrarbingó, lestrarleiki og lestrarspil með galdraþema. Dregin eru út lestrarverðlaun í hverri viku.

Það er gaman að lesa og með því að lesa skemmtilegar bækur og taka þátt í fjölbreyttum sumarlestrar leikjum hjálpum við börnum að viðhalda þeirri færni sem náðst hefur í skólanum. Þess vegna leggur Bókasafn Reykjanesbæjar áherslu á yndislestur barna og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í tengslum við sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst.

 Lestrarleikurinn í ár verður aðeins frábrugðinn því sem bókasafnið hefur áður verið með. Í tilefni 40 ára afmælis Harry Potter þann 31. júlí 2020 munum við vera með í galdraspil og sýningu á galdraveröld í Átthagastofu safnins. Spilin eru í grunninn eins og slönguspilið en nauðsynlegt er að lesa meðan spilað er. Spilaspjaldið verður hægt að nálgast í afgreiðslu safnins og á rafrænu formi á heimasíðu safnsins. Lesturinn verður hægt að skrá á þátttökuseðil sem hægt er að skila á safninu, eða á heimasíðu safnsins. Dreginn verður út lestrarvinningur úr pottinum í hverri viku í allt sumar.

 Öll börn sem taka þátt í sumarlestri fá einnig afhenta bókaskrá. Bókaskráin heldur utan um allan sumarlesturinn. Í bókasafninu fá börn svo stimpil fyrir hverja lesna bók og í upphafi skólaárs afhenda börnin kennara sínum bókaskrána og hún fer í pott sem dregið verður úr í haust.

 Sumarlestur er tilvalin samverustund fyrir fjölskyldur, við hvetjum foreldra til að taka þátt í honum, hjálpa börnum sínum við að velja lestrarefni og hafa gaman að.

 Öll börn í Reykjanesbæ fá bókasafnskort endurgjaldslaust til 18 ára aldurs gegn ábyrgð foreldris/forráðamanns. Árgjald fullorðinna er 2.000 kr. en ellilífeyrisþegar, atvinnulausir og öryrkjar fá ókeypis bókasafnskort gegn framvísun skírteinis.