Bókaverðlaun barnanna

Bókaverðlaun barnanna

 

Bækurnar Pabbi prófessor og Dagbók Kidda klaufa: hundaheppni hlutu Bókaverðlaun barnanna sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu í Grófinni á sumardaginn fyrsta. Pabbi prófessor er eftir Gunnar Helgason en Dagbók Kidda klaufa er eftir Jeff Kinney og í þýðingu Helga Jónssonar.

 

Árlega tilnefna börn á aldrinum 6 - 15 ára bestu barnabækur ársins. Þær tvær bækur sem fá flest atkvæði hljóta Bókaverðlaun barnanna. Annarsvegar eru veitt verðlaun fyrir frumsamda bók á íslensku og hinsvegar þýdda. Í ár tóku þátt um 2500 börn allstaðar af landinu og voru um 95 bækur tilnefndar.