Bókasafnið og Keilir í samstarf

Bókasafn Reykjanesbær og Keilir miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs skrifuðu undir þjónustusamning um sérfræðiþjónustu á sviði bókasafns- og upplýsingafræða ásamt aðgangi að safnkosti og þjónustu Bókasafns Reykjanesbæjar fyrir nemendur á brautum Háskólabrúar og Menntaskólans á Ásbrú.

 

Markmið þjónustusamningsins eru að auka þjónustu við nemendur á brautum Háskólabrúar og Menntaskólans á Ásbrú, efla upplýsingalæsi meðal nemenda skólanna og bjóða upp á skilvirka þjónustu með gagnvirkum hætti við nemendur skólanna.

 

Samningurinn gildir í eitt ár og vonir standa til þess að nemendur Keilis nýti sér þjónustu og aðstöðu Bókasafns Reykjanesbæjar.