Bókasafnið lokar kl.14.55 á Kvennafrídegi

BREYTUM EKKI KONUM, BREYTUM SAMFÉLAGINU!

Í tilefni Kvennafrídagsins 24. október lokar kvennavinnustaðurinn Bókasafn Reykjanesbæjar í dag kl. 14.55.

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna voru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17.

Konur vinna því ókeypis eftir kl. 14:55 á Íslandi!

Hægt verður að skila bókum í skilakassann og Rafbókasafnið er að sjálfsögðu opið allan sólarhringinn.