Leiðsögn um Hjartastað

Helgina 10. og 11. mars er Safnahelgi á Suðurnesjum haldin í 10. sinn en þá opna söfnin upp á gátt og bjóða ókeypis aðgang og fjölbreytta dagskrá. Af því tilefni verður Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri með leiðsögn um sýninguna Hjartastaður í sýningarsal listasafnsins á sunnudag kl. 15. Sýningin samanstendur af Þingvallamyndum úr einkasafni Sverris Kristinssonar og var sett upp í tilefni 100 ára afmælis fullveldis á Íslandi. Hér veltum  við fyrir okkur gildi þessa helgasta staðar Íslendinga fyrir þjóðarvitundina og þá um leið áhrifum Þingvalla á myndlist þjóðarinnar.   Einnig verður myndlistargjörningur í salnum frá kl. 13:30 - 16:30 þar sem myndlistarmaðurinn Stephen Lárus Stephen málar í beinni. Sjálfur kallar hann viðburðinn "A Camera Painting Event" og munum við sjá listamanninn að störfum með lifandi módel þar sem ýmsar uppstillingar verða reyndar.