Um safnið

Duus Safnahús eru lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar og hýsa aðal sýningarsali Listasafns og Byggðasafns Reykjanesbæjar. Bæði söfnin hafa hlotið viðurkenningu Safnaráðs. Þar er einng Gestastofa Reykjaness jarðvangs (Geopark) og fleiri sýningar. 

Fjölbreytt menningarstarf er rekið í þessum gömlu verslunar- og fiskvinnsluhúsum. Saga þeirra nær aftur á 19. öld en elsta húsið, Bryggjuhúsið, var reist árið 1877 af Duus-verslun. Byggingarsaga húsalengjunnar er því vel yfir aldarlöng. Byggt var við húsin eftir þörfum hverju sinni. Um miðja 20. öld  hætti verslunin rekstri og voru húsin þá notuð í tengslum við útgerð. Undir lok síðustu aldar keypti bærinn húsin fyrir safna- og menningarstarf. Nú hefur öll lengjan verið endurbyggð en því verki lauk árið 2014.

Duus Safnahús eru í hjarta gamla bæjarins. Fyrir framan þau má enn sjá leifar af Keflavíkurbænum og þar sem hringtorgið er staðsett var Stokkavörin, aðal lendingarstaður báta fram á 19. öld og eitthvað lengur. Til vinstri má sjá leifar af Dráttarbraut Keflavíkur og  smábátahöfnin í Gróf er í næsta nágrenni ásamt Skessunni í hellinum. Þægilegar gönguleiðir eru bæði út á Berg til vinstri og til hægri hefst göngubrautin, Strandleiðin, sem er 10 km stígur meðfram sjónum og nær inn að Vogastapa í Innri-Njarðvík. Meðfram leiðinni eru upplýsingaskilti um sögu og náttúrufar svæðisins.

Í húsinu eru 9 sýningarsalir af misjafnri stærð. 

Allir salirnir í húsinu eiga sitt heiti:

Efstu húsin: Anddyri, Bátasalur og Listasalur

Milli húsin: Gryfja, Bíósalur

Neðsta húsið, Bryggjuhús: Gestastofa, Stofa, Miðloft og Ris.

 Gengið er inn í húsin um anddyri Listasalsmegin.