Sporbaugur

Sporbaugur/Ellipse.

Gabríela Kristín Friðriksdóttir og Björn Roth.

Opnun laugardaginn 28 maí klukkan 14:00.

Sporbaugur/Ellipse, verður aðal sýning Listasafns Reykjanesbæjar árið 2022, áætlað sýningatímabil er frá laugardeginum 28. maí til sunnudagsins 14. nóvember 2022.

Safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar hefur verið í samtali um langt skeið við listamennina Gabríelu Friðriksdóttur og Björn Roth, bæði eru þau vel þekkt og vekja sýningar þeirra ávallt athygli bæði á Íslandi sem og út fyrir landssteinana.

Gabríela Friðriksdóttir og Björn Roth, eru bæði vel þekktir listamenn sem hafa vel þekkt og afar persónulegt tungumál í listsköpun sinni. Ein kynslóð listamanna skilur þau að en á sama tíma tilheyra verk þeirra sömu fjölskyldu. Bæði eru þau þekkt fyrir súrrealíska túlkun á heiminum, ásamt pönkuðu viðhorfi til heimsins.

Myndheimur beggja listamanna hefur yfir sér framúrstefnulegt ævintýralegt yfirbragð, þó með ólíkum hætti sé.

Sýningin verður gerð sérstaklega fyrir rými Listasafns Reykjanesbæjar.

Listamennirnir hafa ákveðið að vinna með hið alheimskunna fyrirbæri sem flest börn þekkja, en það eru litabækur.

Litabækur fyrir börn eru í raun mjög undarleg fyrirbæri. Til hvers eru þær? Þær þroska ekki sköpunarkraftinn því það er bannað að lita út fyrir og eina sjálfstæðu ákvörðun barnsins liggur í litavalinu. Kannski er uppeldislegt gildi þeirra ekki flóknara en þetta: Að kenna barninu að fylgja reglum og sætta sig við að fá ekki að ráða nema því sem minnstu skiptir í lífinu.

Litabók Gabríelu og Björns virðist fylgja þessum fyrirmyndum en hér skiptir samhengið þó öllu. Bókin er sett fram sem þáttur í listsýningu og litaðar útgáfur þeirra af myndunum hanga á veggjum safnsins: Bókin er orðin listaverk og opinberuð gestum safnsins á svipaða hátt og þegar barn kemur hlaupandi til mömmu til að sýna henni hvað það litaði flott í litabókina sína. Þetta er allt eins og í ævintýri og þannig losnar ímyndunaraflið úr fjötrum. Innsetningar og myndbandsverk taka svo við og leiða okkur enn lengra inn í dularfullan heim þar sem allt getur gerst og allt getur orðið að list.

Gabríela Friðriksdóttir (1971) vinnur gjarnan þvert á listform inn í innsetningar, þar sem óhefðbundinn efniviður sameinast listmiðlum eins og teikningum, málverki, skúlptúr og hreyfimyndum. Í verkunum birtast jafnan súrrealískir smáheimar í einstöku myndmáli á mörkum náttúru og draumkenndrar fantasíu í stöðugum umskiptum, með vísanir í táknfræði og andleg kerfi sem framsett eru í hennar eigin goðafræði.

Gabríela hefur haldið fjölda einkasýninga og verið valin á samsýningar bæði hér á landi og erlendis. Sýningar hennar hafa meðal annars verið í Migros Museum í Zürich 2006, Prospectif cinéma í Pompidou-miðstöðinni í París 2007, Museum of Contemporary Art í Tókýó 2010, Schirn Kunsthalle í Frankfurt 2011 og Lyon tvíæringnum 2013. Gabríela var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2005 með verkið „Versations Tetralógía“. Verk eftir hana eru í eigu einkasafna og safneigna víða um heim.

Björn Roth (1961) hefur starfað við myndlist frá seinni hluta áttunda áratugarins, ferill sem hófst í samruna tónlistarsköpunar og gjörningalistar með Freddy and the Fighters (1975-1978) og Bruna BB (1979-1982). Hann vinnur í stöðugu flæði tilrauna, þar sem hversdagsleikinn rennur saman við listsköpun, með miðla eins og teikningu, málverk og skúlptúr í innsetningum sem jafnan eru unnar beint inn í rými.

Björn hefur sýnt alþjóðlega, bæði haldið einkasýningar og verið valinn á samsýningar, og má þar meðal annars nefna; MOMA – PS1 í New York, Hamburger Bahnhof Museum für Gegenwart í Berlín, the Schaulager Laurenz Foundation í Sviss og MACBA í Barcelona. Hann hefur einnig sett upp innsetningar til langtíma eins og Roth Bar & Grill, í Hauser & Wirth Somerset og New York. Verk eftir Björn eru í eigu einkasafna og safneigna víða í Evrópu og Bandaríkjunum.

Listasafn Reykjanesbæjar, gefur út bók af tilefni sýningarinnar Sporbaugur/Ellipse, sem þjónar bæði sem sýningarskrá og litabók, gripurinn er númerað myndverk gefið út í 500 eintökum sem gestir safnsins geta eignast á hóflegu verði.

Sýninginn Sporbaugur/Ellipse, er styrkt af Myndlistasjóði.