Sögusýning HS Orku
Í árslok verða 50 ár liðin frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Orku. Af því tilefni býður HS Orka íbúum Reykjanesbæjar og öllum gestum Ljósanætur til afmælissögusýningar í Gryfjunni í Duus safnahúsum.
Sýningin er framlag HS Orku til hátíðarinnar í ár. Á sýningunni, sem hönnuð er í samstarfi við Gagarín, er dregin upp mynd af einstakri frumkvöðlahugsun og framsýni, sem fylgt hafa fyrirtækinu í hálfa öld.
Áætlað er að sýningin standi út októbermánuð.