Verk úr safneign - málverk, skissur og steindir gluggar

Sú hefð hefur skapast á liðnum árum að á einni af sumarsýningum Listasafns Reykjanesbæjar eru sýnd verk úr safneigninni.  Að þessu sinni verða sýnd verk eftir Benedikt Gunnarsson listmálara en fjölskylda Benedikts gaf safninu nokkur málverk í vor ásamt skissum af steindum gluggum sem Benedikt vann fyrir Keflavíkurkirkju árið 1977.  Þegar kirkjan var færð til upprunalegs horfs árið 2012 voru gluggarnir teknir niður og settir í geymslu en nú má sjá 6 þessara glugga á sýningunni í Bíósal. Safnið er opið alla daga frá 12-17.