Skessan í hellinum

 Skessan í hellinum flutti til Reykjanesbæjar á Ljósanótt 2008 og hefur nú aðsetur í Svartahelli við smábátahöfnina í Gróf. Þar hefur skessan búið sér til notalegan helli með góðu útsýni yfir Keflavíkina og Faxaflóann.

Skessan er í fullri stærð og situr sofandi í ruggustól í eldhúsinu. Skessan er hugverk Herdísar Egilsdóttur sem árið 1959 gaf út fyrstu bókina um Siggu og skessuna í fjallinu. Sögurnar hafa hlotið hylli barna og í tilefni af opnun hellisins á Ljósanótt 2008 kom út 16. bókin sem kallast Sigga og skessan á Suðurnesjum.

Hönnun hellisins, framkvæmd og gerð skessunnar var í höndum listahópsins Norðanbáls en við undirbúning verkefnisins leituðu þeir ráða hjá skessunni sem kom með ábendingar um gerð hellisins en í hann er notað efni úr nálægu umhverfi sem gerir hann samofinn landinu.

Opið er frá 10:00 – 17:00 alla daga (nema ef veður hamlar opnun yfir vetrartímann t.d. vegna ófærðar að helli).

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Skessunnar

 

Myndir