Gjöf Daða

Listasafn Reykjanesbæjar opnar yfirlitssýningu á verkum Daða Guðbjörnssonar og á
þessum tímamótum gefur hann safninu 400 grafík verk sem eru frá árunum 1978-
2020.
Sýningin mun opna fyrir almenning laugardaginn 17. október og standa yfir til 29.
nóvember, vegna aðstæðna verður opnunarhóf þegar Víðir leyfir.
Sýningastjóri er Aðalsteinn Ingólfsson og skrifar hann einnig í sýningaskrá meðal
annars: Fyrir blöndu tilviljana og ásetnings hefur Listasafn Reykjaness á
undanförnum misserum eignast umtalsvert magn merkilegra grafíkverka eftir íslenska
og erlenda listamenn. Þegar við bætast hundruð grafíkverka eftir Daða Guðbjörnsson,
er deginum ljósara að Listasafn Reykjaness er skyndilega orðið stærsta safn
grafíklistaverka á landinu. Þessi staðreynd gerir safninu kleyft að marka sér sérstöðu í
samfélagi íslenskra safnastofnana, kjósi aðstandendur þess að fara þá leið.
Gjöf Daða Guðbjörnssonar hefur raunar sérstaka þýðingu í því samhengi. Því burtséð
frá almennum listrænum sérkennum og myndlistarlegri þýðingu verka hans á breiðum
grundvelli, sem fjallað hefur verið um annars staðar, (m.a. í sýningarskrá vegna
einkasýningar listamannsins í Listasafni Reykjaness árið 2016), þá er gjöfin einstök
sýnisbók grafíktækninnar. Nær öll afbrigði hennar er þar að finna, að undanskildri
messótintu, sem listamaðurinn segist hafa leitt hjá sér vegna þess hve tímafrek hún er,
auk þess sem hún „passaði ekki við þann áfangastað sem hann var að leita að“, að því
listamaðurinn segir. Þarna eru tréristur, dúkristur, steinprent, koparætingar, sáldþrykk,
einþrykk, offset þrykk og blönduð verk, þar sem tvö eða þrjú prentafbrigði eru saman
komin. Að ógleymdum handlituðum eða yfirprentuðum þrykkjum í öllum regnbogans
litum. Uppáfinningarsemi listamannsins virðast engin takmörk sett. Er ljóst að þarna
er að finna hráefni bæði til sýninga og margháttaðra kennslufræðilegra tilrauna með
nemendum í myndmennt. Listasafn Reykjaness hefur einmitt lagt sig fram um að
vinna með skólum í bæjarfélaginu.