Ást á íslenskri náttúru!

Náttúra Íslands í augum tveggja Njarðvíkinga.

Náttúra Íslands hefur sem betur fer átt sína hjartans unnendur á öllum tímum  og nú má sjá skemmtilega sýningu Stofunni í Duus Safnahúsum  sem tengist einmitt þessari náttúruást. Sýningin samanstendur af 15 ljósmyndum sem Oddgeir Karlsson ljósmyndari í Njarðvík hefur tekið víða á Reykjanesinu og fuglum og grjóti úr safni Njarðvíkingsins Áka Gränz heitins en hann var ástríðufullur steinasafnari með meiru.  Við fráfall Áka eignaðist Reykjanesbær mikið steinasafn ásamt fjölda listaverka og á sýningunni núna má sjá úrval úr steinasafninu en listaverkin bíða betri tíma.  Sýningin mun standa í sumar og eru bæjarbúar hvattir til að koma og njóta.