TILEINKUN

TILEINKUN
“Einhvers staðar inni í massanum
sá ég endanlegt formið”

Þessi sýning er tileinkuð minningu Valgerðar Guðlaugsdóttur vinkonu okkar og samferðakonu í myndlistinni.
Innblástur og hugmyndir geta birst manni í ýmsum myndum og úr ólíkum áttum en hugmyndin að þessari sýningu spratt úr draumi sem einum sýningarstjóra dreymdi um rauða litinn sem Valgerður notaði í fjölda verka sinna. Það má segja að þessi sýning sé ávöxtur þessa draums.
Sýningastjórarnir: Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir
Þær völdu 8 listamenn á stefnumót við verk Valgerðar og með því vildu sýningarstjórarnir búa til samhengi – tvinna saman ákveðna frásögn og samtal við aðrar sterkar listakonur af ólíkum kynslóðum. Listaskonurnar eru Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala þórdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Jónsdóttir.

Sýningin opnar þann 18.11.23 og stendur til og með 11.02.24.