Óskir íslenskra barna

Í tengslum við Listahátíð barna býður Listasafn Reykjanesbæjar upp á ljósmyndasýninguna Óskir íslenskra barna, sem ferðast nú um landið og er gjöf ljósmyndarans Ástu Kristjánsdóttur og Barnaheilla - Save the Children á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna og Barnasáttmálans.

Ljósmyndirnar byggja á reynslusögum úr samtíma íslenskra barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt.  Myndirnar sýna óskir barnanna um betra líf.

Fræðsla er mikilvægur þáttur í sýningunni þar sem börn eru frædd um mannréttindi sín og hvert hægt er að leita ef þau telja að brotið sé á þeim sjálfum eða einhverjum í kringum þau.

Sýningin gegnir einnig því hlutverki að skapa von þar sem börn geta á einfaldan hátt skrifað óskir sínar á miða. Á sýningunni er einnig óskatré þar sem börn geta skrifað óskir sínar um betri heim á miða og fest á tréð.