Opnun sýninga

Næstkomandi föstudag 15. febrúar kl. 18 opnar Listasafn Reykjanesbæjar sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar í Duus Safnahúsum.  Sýningin ber heitið TEIKN og er samsett úr 8 verkum sem öll fjalla með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“ í víðasta skilningi þessara orða. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Í sýningarskrá má m.a. sjá texta eftir Sjón. 

Við sama tilefni verður opnuð í Bíósal Duus Safnahúsa sýning á ljósmyndum úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar. Sýningin ber heitið LJÓS OG TÍMI og samanstendur af ljósmyndum úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar. Á síðustu 15 árum hefur Listasafn Reykjanesbæjar eignast fjölda listrænna ljósmynda sem nú má sjá á sýningu hér í Bíósal. Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.

Einnig opnar Byggðasafn Reykjanesbæjar á sama tíma ljósmyndsýninguna FÓLK Í KAUPSTAÐ. Sýningarstjóri og ljósmyndari verða með leiðsögn sunnudaginn 10.mars kl.14. Á sýningunni gefur að líta örlítið sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944-1994.

Formaður menningarráðs Reykjanesbæjar Elfa Hrund Guttormsdóttir opnar sýningarnar. 

Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.