Útskriftarsýning listnámsbrautar FS

Það var ánægjulegt þegar listnámsnemendur Fjölbrautaskólans bættust við sem þátttakendur í Listahátíð barna enda byggja þeir allir á því veganesti sem þeir hlutu í leik- og grunnskólum. Í Stofunni gefur að líta verk útskriftarnemenda af listnámsbraut sem unnin eru á ýmsan hátt t.d. með bleki, akrýl, vatnslitum, þrykki og blandaðri tækni. Listamennirnir eru Fanný Elísabet Arnarsdóttir, Guðrún Pálína Karlsdóttir, Hinrik Örn Sölvason, Lovísa Ýr Andradóttir, Smári Snær Laine og Sæmundur Ingi Margeirsson. Sýningin stendur til 21. maí. Ókeypis aðgangur í fylgd barna.