Nánd

Nánd nefnir Jóhanna Hreinsdóttir sýningu sína sem opnuð verður í Bíósalnum  11.nóvember kl. 18.  Sýningin stendur til 15.janúar n.k. og er opið alla daga frá kl. 12.00-17.00.

Myndhugsun mín, sem er bundin litum, formum náttúrunnar og tilfinningalegu gildi þeirra, beinist inn á við og flæðir á vit óvissunnar í leit að samhljómi. Margbreytileiki og óútreiknanleg framvinda lífsins eru þannig uppstretta hugmynda minna. Allt frá fyrstu pensilstroku til þeirrar síðustu eiga sér stað mörg samtöl – frá einu augnabliki til annars – þar sem ekkert er fyrirfram ákveðið. Ferlið þróast og tekur sífelldum breytingum eins og lífið sjálft.

Ég reyni að fanga hið skynræna handan tungumálsins, vitundina sem leitar stöðugt við að skapa, hreyfinguna sem leitast við að móta, forma og festa, en um leið að ýta við hinu formaða og brjóta það upp í ófyrirsjáanleika sínum. Leitin inn á við verður þannig kveikja að óendanlegum uppgötvunum, nýrri upplifun og nýju lífi, sem skapar verkinu nánd og varanleika. Þannig öðlast það sinn eigin hljóm.