Jólamarkaður í Duus Safnahúsum

Ertu að leita að skemmtilegri jólagjöf?
Jólamarkaður í Duus Safnahúsum

Sannkölluð jólastemning verður ríkjandi í Duus Safnahúsum um helgina. Jólamarkaður verður opinn bæði laugardag og sunnudag í Bíósal þar sem handverk og fleira skemmtilegt frá heimafólki verður á boðstólum. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og gera góð kaup.

Þá er um að gera að koma við í Stofunni í Bryggjuhúsinu sem skreytt hefur verið hátt og lágt fyrir gamaldags jólatrésskemmtun sem haldin verður á sunnudaginn kl. 14. Einnig er upplagt að nota tækifærið og skoða sýninguna Verndarsvæði í byggð í Gryfjunni, sem opnuð var fyrir skömmu, og hafa áhrif á framtíðaruppbyggingu á Duushúsa svæðinu.

Það er því eitthvað fyrir alla í Duus Safnahúsum um helgina.

Markaðurinn er opinn laugardag og sunnudag kl. 12-17 og eru allir hjartanlega velkomnir.