Innan girðingar og utan - söfnun frásagna um setuliðið á Miðnesheiði

Eva Kristín Dal, safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar, og Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóðhátta við Þjóðminjasafn Íslands, munu kynna verkefnið fyrir gestum Duus safnahúsa laugardaginn 18. mars. Þeir sem hafa áhuga geta tekið þátt í verkefninu og svarað einni eða fleiri spurningaskrá. Spurningaskrárnar verður einnig hægt að nálgast í gegnum menningarsögulega gagnasafnið Sarp, https://sarpur.is/Spurningaskrar.aspx?View=small.