FÓLK Í KAUPSTAÐ - Leiðsögn

Byggðasafn Reykjanesbæjar opnar ljósmyndsýninguna FÓLK Í KAUPSTAÐ 15.febrúar kl.18:00.  Á sýningunni gefur að líta örlítið sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944-1994.

Sýningarstjóri og ljósmyndari verða með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 10.mars kl.15.

Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.