Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leikur sjómannalög

Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum mun Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leika sjómannalög í Bátasal Duus Safnahúsa sunnudaginn 10. mars kl. 13:00 -14:00.  Í Bátasalnum eru rúmlega 100 bátalíkön úr skipaflota landsmanna sem Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri og líkanasmiður hefur gert.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.