Blómahaf

Blómahaf nefnir Elínrós Blomquist Eyjólfsdóttir sýningu sína í Bíósalnum sem verður opnuð 1.september næstkomandi kl. 18 á Ljósanótt. Á sýningunni sem verður að hluta til yfirlitssýning á verkum hennar gefur að líta málverk, teikningar og skissur, postulín og skartgripi. Verkin eru sum hver mjög stór olíumálverk sem áður voru til sýnis í Hofi á Akureyri fyrr á þessu ári en einnig eru minni verk og landslagsverk. Sýningarstjóri er Gunnhildur Þórðardóttir myndlistarmaður.

Myndheimur Elínrósar er draumkenndur en á sama tíma raunsær þar sem myndefnið er málað af mikilli nákvæmni og af raunsæi og virðingu fyrir efninu. Á myndunum lifnar gróðurinn við og hefur áferð hollensku meistaranna en fyrirmyndir eru alltaf raunverulegar plöntur. Form og listræn fegurð myndanna hefur mikið gildi og er hægt að skynja lífrænan kraft þeirra. 

Elínrós hefur tekið þátt í sýningum víða bæði á Íslandi og erlendis meðal annars í Hofi, í Hafnarborg, Gallerí Horninu, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Eftir víðtækt nám í postulínsmálun hóf Elínrós nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands þar sem hún lauk námi úr málaradeild á árinu 1987. Hún hélt áfram að þróa postulínsmálunina og sótti námskeið hjá þekktustu kennurum beggja vegna hafsins. Árið 1995 lauk hún mastersnámi í málun frá Skidmore College í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig sótt fjölda námskeiða erlendis og verið í gestavinnustofum. Elínrós er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og í Nordiska Akvarellsallskapet. 

Listamannaspjall verður sunnudag 4. september kl. 15. Sýningin verður opin yfir Ljósanæturhelgina fim kl.18-20, fös – sun kl.12-18. Eftir það alla daga kl. 12 – 17 og stendur til 30. október.