Ásjóna

Í Bryggjuhúsinu má sjá myndir sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar í upprunalegum römmum. Myndirnar eiga það sameiginlegt að sýna fólk sem hefur búið á því svæði sem tilheyrir Reykjanesbæ.  Elstu myndirnar eru líklega um 140 ára gamlar en þær yngstu teknar fyrir 20 árum. Myndir sem fá þann sess að vera settar í ramma og hafðar til sýnis hafa yfirleitt ákveðið gildi í augum eigandans. Þær sýna gjarnan ástvini sem eru fjarri eða eru teknar við tímamót í lífinu. Væntumþykja, stolt eða söknuður eru meðal þeirra tilfinninga sem eru tjáð með þessum hætti.

Sýningin er í Bryggjuhúsi Duus Safnahúsa, Duusgötu 2-8.  Opið alla daga frá 12-17.