Ágústmyndir Septembermanna og FÖR - leiðsagnir

Nú líður senn að lokum tveggja sýninga í Listasafn Reykjanesbæjar og munu aðstandendur þeirra taka á móti gestum á laugardag.

Kl. 14:30 spjallar Elva Hreiðarsdóttir við gesti í sýningu sinni FÖR en um er að ræða verk unnin með blandaðri tækni og einþrykk.

Kl. 15:00 tekur Aðalsteinn Ingólfsson á móti gestum í listasal á sýningunni Ágústmyndir Septembermanna - Myndir úr safni Braga Guðlaugssonar. Á sýningunni eru verk eftir þrettán íslenska listamenn sem endurspegla mikið umbrotaskeið íslenskrar myndlistar, verkin sem kynslóð eftirstríðsáranna gerði í aðdraganda myndlistarbyltingarinnar sem kennd er við Septembersýningarnar 1947-1952.

Ókeypis aðgangur verður á leiðsagnirnar, heitt á könnunni og allir hjarrtanlega velkomnir.