Veglegar gjafir til Listasafns Reykjanesbæjar

Mannfólkið er heiti á sumarsýningu Listasafns Reykjanesbæjar ársins 2016 í Duus Safnahúsum og þar má m.a. sjá málverk eftir listmálarann Ásgeir Bjarnþórsson sem heitir „At the Pool“ og er önnur útgáfa af mynd sem send var á Olympíu sýninguna í London árið 1948. Nú hafa eigendur verksins, hjónin Sveinn og Svava Kristín Valfells, ákveðið að gefa safninu verkið í minningu málarans. Einnig gefa þau safninu tvær aðrar myndir sem tengjast Reykjanesbæ; önnur er mynd eftir Magnús Á. Árnason frá Narfakoti í Njarðvík og hin er mynd eftir Jón Steingrímsson stýrimann sem bjó síðari ár sín í Keflavík en hann var faðir Svövu. Báðar þessar myndir voru í eigu Þórgunnar Ársælsdóttur Árnasonar frá Narfakoti en hún var fyrri kona Jóns Steingrímssonar og móðir Svövu.

Listasafn Reykjanesbæjar á nú um 700 listaverk sem flest eru í nýrri kantinum og því er mikill fengur að þessari viðbót af eldri verkum í safnkostinn. Forstöðumaður safnsins Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi og formaður menningarráðs Eva Björk Sveinsdóttir tóku á móti gjöfinni og þökkuðu höfðingsskapinn.