Súlan - Menningarverðlaun Reykjanesbæjar

Starfsmenn Umhverfisþjónustu og Veghúss koma hér listaverkinu á stöpul við Bryggjuhúsið ásamt Elísab…
Starfsmenn Umhverfisþjónustu og Veghúss koma hér listaverkinu á stöpul við Bryggjuhúsið ásamt Elísabetu Ásberg.

Menningarverðlaun Reykjanesbæjar eru veitt árlega einstaklingum eða fyrirtækjum sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Verðlaunagripurinn er eftir Elísabetu Ásberg og ber heitið Súlan.
Menningarráð Reykjanesbæjar lagði til á fundi sínum í apríl 2018 að gerð yrði eftirmynd af Súlunni og listaverkið sett upp í nágrenni Duus Safnahúsa í tilefni afmælis þriggja menningarstofnana bæjarins. Bókasafn Reykjanesbæjar varð 60 ára á árinu, Byggðasafn Reykjanesbæjar 40 ára og Listasafn Reykjanesbæjar 15 ára. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna og verður verkið sett upp við suðurgafl Duus Safnahúsa.