Síðasta sýningarhelgi og spjall um sýningu Erlings Jónssonar
15.08.2024
Síðasta sýningarhelgi sýninga Listasafns Reykjanesbæjar, Inn í ljósið og Erlingur Jónsson ásamt sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar, Rís þú, unga Íslands merki í bíósal Duus safnahúsa fer nú fram um helgina.
Í tilefni af því býður safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar, ásamt fjölskyldumeðlimum Erlings, Jóni Guðmari Jónssyni og Ásgeiri Erlingssyni í listamannaspjall. Tekið er á móti gestum klukkan 15:00, sunnudaginn 18. ágúst. Þrenningin mun eiga létt spjall við gesti safnsins um líf og list Erlings Jónssonar listamanns.
Verið velkomin, aðgangur ókeypis.