Safnaheimsókn í vetrarfríi

Vetrarfrí grunnskólanna er góður tími til að eiga gæðastund með börnunum og fara í safnaheimsókn. Það eru fjölbreyttar sýningar á vegum listasafns og byggðasafns í gangi um allt húsið og meira að segja ratleikur með Músa og Dúsu. Safnið er góður staður til að opna hugann, spjalla saman og velta fyrir sér alls konar hlutum. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til okkar og bjóðum foreldrum í samfylgd barna ókeypis aðgang frá föstudeginum 20. október til mánudagsins 23. október. Við hlökkum til að sjá ykkur.