Jólaföndur fjölskyldunnar. Skreytum saman í Bryggjuhúsi

Sunnudaginn 1. desember frá kl. 14 – 16 er fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í jólastofunni í Bryggjuhúsi þar sem búin verða til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur. Þar er einnig upplagt tækifæri til að taka jólamyndir af börnunum í jólastofunni. Aldrei að vita nema jólasveinn af gamla skólanum kíki í heimsókn :-)

Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin, sem þá var starfrækt, fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn.

Fyrir tveimur árum dustuðum við rykið af þessari sögu og héldum gamaldags jólaball í Bryggjuhúsi. Áður var boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur föndruðu skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Hefur þetta verið einstaklega vel heppnað og því verður leikurinn endurtekinn í ár.

Gamaldags jólaball í anda Duusverslunar verður svo haldið sunnudaginn 8. desember frá kl. 14-16. Allir eru velkomnir á þessa viðburði og aðgangur er ókeypis.