Sumarlesturinn 2019
Sumarlesturinn er hafinn í Bókasafni Reykjanesbæjar!
Öllum börnum í grunnskólum Reykjanesbæjar og elsta bekk leikskóla er boðið að taka þátt í Sumarlestursátaki Bókasafns Reykjanesbæjar sumarið 2019. Sumarlestur er mikilvægur því hann viðheldur og eflir lestrarfærni sem börnin hafa náð í vetur. Eftir langan vetur eru flest börn þó reiðubúin í að breyta til og brjóta upp hina daglegu rútínu.
Átakið var kynnt öllum börnum í 1. -5. bekk í grunnskólum bæjarins og fengu þau með sér heim bækling og bókaskrá. Þau sem vilja taka þátt í Sumarlestrinum geta skilað bæklingnum í skólabókasafnið fyrir eða eftir sumarfrí - eða í Bókasafn Reykjanesbæjar í allt sumar. Allir sem skila komast í pott og Lestrarhestrar verða dregnir út einu sinni í viku í allt sumar og fá lestrarverðlaun.
Þegar fyrsta bæklingnum hefur verið skilað er hægt að nálgast fleiri í Bókasafni Reykjanesbæjar og prentvænar útgáfur er hægt að nálgast neðst í þessari færslu ásamt skráningarformi.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður í bókasafninu í sumar, meðal annars verður föndur á hverjum einasta degi, m.a. flugdrekagerð, skutlur, goggar, vindmyllur, þyrlur og ratleikir. Dagskrá sumarsins má alltaf nálgast á heimasíðu og Facebook síðu safnsins.
Safnið er opið alla virka daga í sumar frá klukkan 09.00-18.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00-17.00. Sumarlestursátakið er frá 1. júní til 31. ágúst.
Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.
Hér fyrir neðan er hægt að skrá í Sumarlestur og prenta út gögn:
SKRÁ MIG/BARNIÐ MITT Í SUMARLESTURINN 2019
LESTRARBINGÓSPJALD 1 - FRAMHLIÐ OG BAKHLIÐ