Söngstund og opnunarhátíð Aðalsafns

Í tilefni opnunar bókasafnsins á Hjallavegi 2 fyrr í ágústmánuði verður formleg opnun safnsins haldin í hádeginu,
fimmtudaginn 4. september, samhliða hinni árlegu söngstund sem er einn af þeim viðburðum sem markar upphaf Ljósanætur.  

Söngstundin á bókasafninu hefur um árabil verið fastur liður í hátíðinni og höldum við þeirri hefð áfram þrátt fyrir
að safnið hafi flutt sig um set. Að þessu sinni fer viðburðurinn fram í Bergi í Hljómahöll og hefst kl. 12:15.  

Boðið verður upp á léttar veitingar, söng og gleði. Kjartan Már bæjarstjóri tekur upp fiðluna að vanda og leiðir
samsönginn ásamt Sverri Bergmann bæjarfulltrúa og valinkunnum hljóðfæraleikurum.   

Við hvetjum íbúa og gesti Reykjanesbæjar til að taka þátt í þessari skemmtilegu stund
og fagna opnun nýja bókasafnsins og upphafi Ljósanætur.