Mottuvika
27.-31. Mar
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Bókasafn Reykjanesbæjar sýnir stuðning í verki og heldur mottuviku í bókasafninu.
Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum um leið fjár fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélags Íslands .
Kíktu við í safninu og nældu þér í mottu-bókamerki. Hægt er að taka þátt í átakinu á samfélagsmiðlum með því að nota myllumerkið #mottumars og ekki gleyma að merkja Krabbameinsfélag Íslands.
Við tökum hlýlega á móti þér.