Manga og persónusköpun - vinnustofa

Komdu með okkur í ferðalag um Manga-heiminn!
 
Atla Hrafney, listakona, teiknari og myndasöguhöfundur, mætir með skemmtilega og skapandi smiðju fyrir 12-16 ára sem vilja læra að hanna sitt eigið manga!
 
Manga er það sem flestir táningar eru solgnir í. Sögurnar höfða sérstaklega til þeirra og því ætlum við að kanna þessa tegund myndasagna aðeins dýpra. Atla fer með krökkunum í töfraheima persónusköpunar og hvernig það hefur áhrif á myndasögur. Að lokum munu þau búa til sína eigin manga hetjur!
 
Viðburðurinn er hluti af BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ.