Leshringur Norrænafélagsins á Suðurnesjum

Leshringur Norræna félagsins á Suðunesjum 16. apríl kl. 19:30 í Bókasafni Reykjanesbæjar Hljómahöll. Gengið er um inngang við Merkines fyrir aftan Stapann.
 
Á þessum fundi ræðum við bókina Kalak eftir Kim Leine.
 
Kalak er fyrsta bók höfundar og er skáldævisaga. Sögusviðið er Noregur, Danmörk og Grænland. Söguhetjan elst upp í Noregi en býr frá 16 ára aldri í Danmörku þar til hann flytur til Grænlands sem útskrifaður hjúkrunarfræðingur. Stór hluti bókarinnar er lýsing á lífinu í Grænlandi. Oddný Harðardóttir segir frá höfundi í nokkrum orðum og hefur samtalið um bókina.
 
Öll velkomin.