Fornsögunámskeið - Laxdæla saga

Þriðjudaginn 14. október klukkan 19.30 verður fyrsti hittingur (af fimm) í námskeiði um Laxdæla sögu í Aðalsafni  ef næg þátttaka fæst. Skráning er opin!

Íslenskukennarinn Anna Karlsdóttir Taylor stýrir námskeiðinu sem er á þriðjudagskvöldum frá 19.30 - 21.30, samtals 5 skipti. 

Námskeiðið kostar 5.000 kr. og innifalið er kaffi ásamt meðlæti. 


Skráning er nauðsynleg en hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins eða með að senda skilaboð á tölvupóstfangið bokasafn@reykjanesbaer.is.