Fataskiptimarkaður í Stapasafni
20.-25. Apr
Viðburðir bókasafn
Dagana 20. - 26. apríl verður fataskiptimarkaður í Stapasafni í tilefni af viku 17 sem er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum.
Við hvetjum ykkur til að koma með gömul föt sem þið notið ekki lengur en geta nýst öðrum og takið ykkur eitthvað annað í staðinn. Það má bæði skilja eftir og taka föt, án allra kvaða.
Við tökum eingöngu við heillegum og hreinum fötum sem geta nýst öðrum. Slitin föt geta farið í gáma þar sem þau eru endurnýtt.