Bókaspjall eftir sumarfrí

Leshringur Bókasafnsins hittist þriðja hvern þriðjudag hvers mánaðar og fer saman yfir valdar bækur!

 

Að þessu sinni ræðir hópurinn um hvað meðlimir lásu í sumarfríinu!

 Klúbburinn hittist í Aðalsafni  við Hjallaveg 2, í sama húsi og Hljómahöllin.

 Umsjón með klúbbnum hefur Unnur Ósk Wium Hörpudóttir.

 Viðburðurinn er ókeypis og öll áhugasöm velkomin!

 

Hér er Facebook-hópur Leshringsins þar sem hægt er að fylgjast með því hvaða bækur eru teknar fyrir hverju sinni.