Bókabíó barna - Bróðir minn Ljónshjarta

Ein eftirminnilegasta barnabók Astrid Lindgren er Bróðir minn Ljónshjarta sem fjallar um bræðurna Snúð og Jónatan sem hittast í ævintýraheiminum Nangijala eftir dauðann.
 
Þriðja sunnudag hvers mánaðar sýnum við barnamyndir byggðar á bókum Astrid Lindgren í Félagsbíói Aðalsafni.
 
Að þessu sinni verður myndin Bróður minn Ljónshjarta sýnd með íslensku tali sunnudaginn 19. apríl kl 13:00.
 
Viðburðurinn er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin að koma og njóta með okkur, á meðan húsrúm leyfir.