Bókabíó á Safnahelgi, Paddington 2

Bangsinn viðkunnulegi lætur sjá sig á Safnahelgi þegar við sýnum hina sívinsælu Paddington 2 í Félagsbíói.

Í Paddington 2 lendir Paddington í miklum vandræðum þegar verðmætri bók er stolið og hann er ranglega sakaður um þjófnaðinn og sendur í fangelsi. Fjölskyldan hans reynir að finna hinn raunverulega þjóf á meðan Paddington eignast nýja vini í fangelsinu. Hlýleg og fyndin fjölskyldumynd um vináttu, góðmennsku og að sanna sakleysi Paddingtons.

Viðburðurinn er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin að koma og njóta með okkur, á meðan húsrúm leyfir.