Áhrifamáttur íslenskra lækningajurta

Hvað vitum við raunverulega um nytsemi og áhrifamátt íslenskra lækningajurta? Íslensk náttúra býr yfir ótrúlegum kröftum sem hafa nýst þjóðinni til heilsubótar í aldanna rás.
 
Í samstarfi við Garðyrkjufélag Suðurnesja og Viku 17 bjóðum við ykkur velkomin á fróðlegt og athyglisvert erindi Kolbrúnar Björnsdóttur grasalæknis. Kolbrún er einn okkar þekktasti sérfræðingur á þessu sviði með yfir 30 ára reynslu, en hún rak eigið jurtaapótek í fjöldamörg ár og mun miðla sérfræðikunnáttu sinni til áheyrenda.
 
Heimsmarkmiðin
Viðburðurinn er hluti af Viku 17, sem er alþjóðleg vika heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á bókasöfnum. Þema ársins er Ekkert hungur (Markmið 2).