Sumarlestur í allt sumar!

Sumarlestur

Í Bókasafni Reykjanesbæjar í allt sumar frá
júní til september; fjölbreyttur og skemmtilegur!


Sumarlestur er mikilvægur, hann viðheldur og eflir þá lestrarfærni sem börnin hafa náð í vetur. Eftir langan vetur eru flest börn þó reiðubúin til þess að breyta og brjóta upp daglega rútínu. 

Sumarlestur bókasafnsins er skemmtilegur og fjölbreyttur.

Ásamt bingóspjöldum og orðasúpu sem hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár verða einnig í boði lestrar spil. Spilin eru í anda Grímsævintýra.  Hægt er að nálgast spilin á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar og í afgreiðslu safnsins. Bráðskemmtileg spil fyrir alla fjölskylduna, hægt er að skila inn þátttökumiða eftir hvert skipti sem spilað er.
 
Börn sem vilja taka þátt í Sumarlestrinum geta skráð sig  rafrænt á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar, í skólabókasafni sínu eða í afgreiðslu Bókasafns Reykjanesbæjar. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Þeir sem skrá sig komast í pott og Lestrarhestar verða dregnir út vikulega í allt sumar og fá skemmtileg lestrarverðlaun.

Á heimsíðu Bókasafns Reykjanesbæjar er hægt að nálgast prentvænar útgáfur sem gilda bæði þegar lestrarleikir eru spilaðir og við skráningu í sumarlestur.

Bókaskrá sumarlesturs fór heim með börnum 1.-5. bekkjar í grunnskólum Reykjanesbæjar en henni skila börnin til umsjónarkennara þegar skólinn byrjar aftur í haust.

Gæta þarf þess að allar upplýsingar fylgi skráningarblaðinu. Boð á uppskeruhátíð í lok sumars verða send út rafrænt.

Safnið er opið alla virka daga frá klukkan 09.00-18.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00-17.00.

Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

 

Kynning á sumarlestri 2021 (youtube)

Skráning í sumarlestur (skila rafrænt) 

Jói og baunagrasið (útprent)

Grimmt lestrarspil (Útprent)

Grimmt lestrarspil leiðbeiningar og leikmenn (Útprent)

Grimmt lestrarspil leikmenn (Útprent)

Grimmt lestrarspil lesreitir (Útprent)

Þátttökuseðill (skila rafrænt)

Þátttökuseðill.pdf (útprent)